Sjóferðir: beðið skýringa

Ísafjarðarhöfn.

Beðið er svara frá Sjóferðum við fyrirspurn Bæjarins besta um farþegagjald sem fyrirtækinu ber að skila til Hafnasjóðs Ísafjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarskrifstofunni hafa Sjóferðir gefið upp 4.940 farþega sem greitt er af til hafnarinnar, en fjöldi farþega er nærri 15.000 samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Farþegagjald af 10.000 manns er um 1,9 m.kr.

Óskað var eftir skýringum á þessum mismun.

DEILA