Mikil tækifæri felast í þörungum

Sigurður Pétursson stjórnarformaður samtakanna. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Stofnuð hafa verið Samtök þörungafélaga á Íslandi (e. Algae Association of Iceland, AAI) en fyrsti stjórnarfundur hinna nýstofnuðu samtaka fór fram síðastliðinn fimmtudag. Stofnendur félagsins eiga það sameiginlegt að stunda sjálfbæra öflun, ræktun, rannsóknir, fræðslu, vinnslu, vöruþróun og sölu á afurðum tengdum þörungum.

Meira en 20 fyrirtæki og stofnanir standa að stofnun félagsins.

Þörungar eru taldir munu leika stórt hlutverk í baráttunni gegn loftslagsvandanum á næstu árum en þörungar eru þeim eiginleikum gæddir að geta fjarlægt kolefni úr koltvísýringi í andrúmsloftinu og skilað því til baka sem súrefni. Nú stendur yfir loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP27, í Kaíró í Egyptalandi þar sem kallað er eftir því að gripið verði til umfangsmikilla aðgerða til að stemma stigu við loftslagsvandanum.

Ræktun þara á heimsvísu er að sögn Sigurðar Péturssonar tífalt meira að magni til en allt laxeldi , sem er þó 2,6 milljón tonna.

Mikil tækifæri sem felast í þörungum

Tilgangurinn með nýju samtökunum er skapa vettvang fyrir umræðu um rekstrarumhverfi sem snýr að þörungastarfsemi á landi, grunnsævi og á höfunum úti fyrir Íslandi. Samtökin vilja einnig stuðla að aukinni þekkingu á starfsemi þörungafyrirtækja á Íslandi og þeim miklu tækifærum sem felast í þörungum. Þá munu samtökin leggja mikið upp úr alþjóðlegu samstarfi greinarinnar og eru þau þegar í viðræðum við sambærileg félög á alþjóðavísu.

Í fyrstu stjórn samtakanna hafa verið kjörin Sigurður Pétursson, stofnandi Ræktar fræðslumiðstöðvar lagareldis, sem jafnframt er formaður, Tryggvi Stefánsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Algalíf, Áshildur Bragadóttir, endurmenntunar- og nýsköpunarstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands, Eydís Mary Jónsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur, og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, framkvæmdastjóri Running Tide á Íslandi.

Sigurður Pétursson er formaður stjórnar Samtaka þörungafélaga á Íslandi: „Það er mikil gerjun á Íslandi sem og erlendis í þessari atvinnugrein sem má ekki síst rekja til umhverfisvitundar fólks þar sem þörungar eru þær lífverur sem binda mest af koltvíoxíði í heiminum. Þörungar hafa 400 sinnum meiri virkni en sambærilegt svæði skóglendis. Höfin eru lungu jarðarinnar og með sjálfbærri nýtingu og ræktun bæði á hafi og landi er hægt að framleiða vörur með jákvæðum umhverfisáhrifum. Einstakar náttúruaðstæður með grænni raforku og jarðvarma hafa þegar komið Íslandi á kortið í smáþörungaræktun og vinnslu og það er ýmislegt að gerjast í stórþörungum. Þörungaafurðir eru margvíslegar og eru m.a. nýttar til kolefnisförgunar, dýrafóðurs, áburðar og umhverfisvænnar matvæla- og lyfjaframleiðslu. Ísland á mikla möguleika á að verða leiðandi í nýsköpun og framþróun ræktunar og framleiðslu afurða úr þörungum ef rétt er haldið á spöðunum.“

Á meðfylgjandi mynd má sjá nýskipaða stjórn Samtaka þörungafélaga. Frá vinstri Tryggvi Stefánsson, Sigurður Pétursson, Kristinn Árni L. Hróbjartsson og Áshildur Bragadóttir. Á myndina vantar Eydísi Mary Jónsdóttur.
DEILA