HVEST: Stoðkerfismóttaka sjúkraþjálfara á heilsugæslustöðinn á Ísafirði

Frá og með gærdeginum verður boðið upp á stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara á heilsugælsustöðinni á Ísafirði. Þá er hægt að panta tíma og fá skoðun og ráðgjöf hjá sjúkraþálfara vegna verkja frá stoðkerfi til dæmis einkenna frá baki, hnjám og öxlum. Helsta markmið er að koma í veg fyrir versnun einkenna og koma bata í gang eins fljótt og hægt er.

Stoðkerfismóttaka sjúkraþjálfara er nýtt úrræði hér vestra og verður í boði á heilsugæslustöðinni á Ísafirði þrjá daga í viku.

Sjúkraþjálfarinn veitir fyrst og fremst fræðslu og ráðleggingar í formi sjálfshjálpar á borð við æfingar, hvíldarstöður, teipingar, vinnustellingar eða sjálfsmeðferðar í formi hita og kælimeðferðar, mjúkvefjameðferðar eða annars.


Ef sjúkraþjálfari á stoðkerfismóttöku telur málið þess eðlis þá getur hann skrifað beiðni um sjúkraþjálfun og vísað einstaklingnum til meðferðar hjá sjúkraþjálfara utan heilsugæslunnar.


Ef sjúkraþjálfari stoðkerfismóttöku telur að einstaklingur sem leitar á stoðkerfismóttöku þurfi læknisskoðun eða myndrannsóknir þá er honum vísað áfram til læknis.


Eftir komu á stoðkerfismóttöku er veitt eftirfylgni í formi símtals, oftast 2-3 vikum frá komu til sjúkraþjálfarans.

Stoðkerfismóttakan er opin:
Þriðjudaga kl. 8:00 – 11:00
miðvikudaga kl. 13:00-16:00
föstudaga kl. 8:00 – 11:00
Tímapantanir eru í gegnum móttöku í síma 450-4500.
Starfsmaður stoðkerfismóttöku er Ólafur Halldórsson sjúkraþjálfari

Stoðkerfismóttaka sjúkraþjálfara í heilsugæslu byrjaði á Íslandi sem tilraunaverkefni hjá HSA árið 2016. Gaf það strax góða raun og er stoðkerfismóttaka nú í boði á fleiri heilsugæslustöðvum á landsbyggðinni og á nokkrum heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins. Í Svíþjóð er löng hefð fyrir starfi sjúkraþjálfara í heilsugæslu og hefur aukist í fleiri löndum meðal annars Finnlandi og Skotlandi.

Verkir frá stoðkerfi eru algengir og eru oft að valda fjarveru frá vinnu. Yfirleitt er þó um að ræða minniháttar einkenni sem hægt er að ráða bót á með réttri og skjótri meðferð meðal annars með sértækri líkamlegri þjálfun og skoðun á líkamsstöðu og  vinnustellingum. Sjúkraþjálfarar eru sérmenntaðir í stoðkerfi líkamans og í að greina frávik í virkni þess. Því fyrr sem sjúkraþjálfari kemur að vandamáli þar sem sérþekkingar hans er þörf, því meiri líkur eru á skjótari og betri bata.

DEILA