Frankensleikir

Frankensleikir er sprenghlægileg og spennandi jólasaga eftir Ísfirðinginn Eirík Örn Norðdahl og fékk bókin frábæra dóma í bókmenntaþættinum Kiljunni.

Í kynningu á bókinni segir:

Spurningarnar glumdu í höfði Fjólu. Hvað í ósköpunum gátu þau verið að meina? Ekki til? Hver hafði þá gefið henni í skóinn? Hver myndi gefa henni í skóinn framvegis? Hvað hafði orðið af þeim? Hver haltraði eftir trégólfum ef ekki Stekkjarstaur? Hver skellti hurðum ef ekki Hurðaskellir? Hver sleikti úr öskum ef ekki Askasleikir?

Jólin nálgast og Fjóla hlakkar til. Bráðum setur hún skóinn út í glugga, Stekkjarstaur kemur til byggða eftir tvo daga. En þá færa foreldrar hennar þær fáránlegu fréttir að jólasveinarnir séu ekki til. Fjóla sér strax að það gengur ekki upp og hefst handa við að bjarga málunum. Við það kemur óvænt að góðum notum að stóri bróðir hennar, Hrólfur, hefur stjórnlausan áhuga á varúlfum, fjörulöllum, margýgjum og öðrum ófrenjum og veit allt sem hægt er að vita um skrímsli Frankenstein.

DEILA