Eflum eldvarnir á heimilum – það er svo mikið í húfi

Nú í  seinni tíð þurfa slökkvilið æ oftar að kljást við eld sem á orsök sín í hinum ýmsu raf- og snjalltækjum á heimilum landsmanna. Þessi tæki eru að sjálfsögðu komin til að vera en tilkoma þeirra og mikil notkun kallar á meiri árvekni vegna eldhættunnar sem af þeim stafar. Það er auðvitað fyrst og fremst á ábyrgð fullorðinna á heimilum að sjá til þess að sem minnst hætta stafi af raf- og snjalltækjum en það er líka mikilvægt að þeir ræði við þá sem yngri eru um þessa hættu og kenni þeim að draga úr henni. Þar skiptir mestu að standa með öruggum hætti að hleðslu til dæmis snjallsíma og rafhlaupahjóla. Þessi tæki á ævinlega að hlaða og geyma í öruggu umhverfi þar sem síður er hætta á að eldur komi upp eða breiðist út með tilheyrandi tjóni og óþægindum.

Eldvarnaátakið

Slökkviliðsmenn leggja sitt af mörkum í því að fræða börn og fullorðna um eldhættu á heimilum og viðbrögð við þeim. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur um þessar mundir fyrir Eldvarnaátakinu sem fram fer í grunnskólum um allt land. Við heimsækjum krakkana í 3. bekk, ræðum við þá um eldvarnir og afhendum þeim margvíslegt fræðsluefni um þær, svo sem söguna um Loga og Glóð og handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Við ætlumst til þess að börnin fari heim með þessa nýfengnu þekkingu og ræði eldvarnir heimilisins við foreldra og forráðamenn.

Eldvarnir á heimilum

Í samtölum okkar við börnin leggjum við einkum áherslu á eftirfarandi:

  • Að í íbúðinni sé nægilegur fjöldi reykskynjara til að tryggja að fjölskyldan fái viðvörun ef eldur kemur upp og tíma til að bregðast við.
  • Að eldvarnateppi sé á sýnilegum stað í eldhúsi, en afar algengt er að eldur komi upp í eldhúsum.
  • Að fara alltaf varlega í umgengni við opinn eld og raftæki.
  • Að slökkvitæki sé sýnilegt við helstu flóttaleiðir.
  • Að allir á heimilinu hafi að minnsta kosti tvær flóttaleiðir, þekki þær og viti hvar á að safnast saman utandyra ef yfirgefa þarf heimilið.
  • Síðast en ekki síst er mikilvægt að börnin þekki neyðarnúmerið, 112. Við þekkjum mörg dæmi þess að börn hafi hjálpað með því að hringja í 112.

Sýnum aðgát


Hér á landi farast að meðaltali um tvær manneskjur í eldsvoðum á ári hverju. Miklu fleiri verða fyrir líkamlegu og andlegu heilsutjóni af völdum eldsvoða ár hvert. Hér glatast auk þess að meðaltali á hverju ári um tveir milljarðar króna í eldsvoðum. Það er því ekki að ástæðulausu sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir Eldvarnaátakinu í nóvember ár hvert. Átakið er mikilvæg viðbót við forvarnastarf sem unnið er á vegum Eldvarnabandalagsins, slökkviliðanna, slysavarnadeilda og fleiri árið um kring.

Með aðgát í daglegri umgengni og nauðsynlegum eldvarnabúnaði getum við dregið verulega úr líkum á að eldur komi upp og valdi tjóni á lífi og eignum. Við slökkviliðsmenn viljum því hvetja fólk eindregið til að huga að eldvörnum heimilisins. Það er ekki síst mikilvægt nú í aðdraganda aðventu og hátíðanna þegar eldhætta á heimilum eykst. Förum varlega með opinn eld, sýnum aðgát og tryggjum að á heimilinu sé fyrir hendi allur nauðsynlegur eldvarnabúnaður sem gerir okkur kleift að bregðast við ef eldur kemur upp.

f.h. Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar

Sveinn H Þorbjörnsson

DEILA