Bréfin hennar mömmu

Bréfin hennar mömmu er ný bók eftir Ólaf Ragnar Grímsson.

Í kjallaranum á Bessastöðum var geymd gömul blá taska. Gerð úr þunnum málmi, beygluð og illa farin, læsingarnar lítið eitt ryðgaðar. Þessi taska hafði fylgt fjölskyldu Ólafs Ragnars allt frá æskuárum hans á Ísafirði en var aldrei opnuð fyrr en að lokinni forsetatíð.

Þá kom í ljós fjöldi bréfa sem móðir hans, Svanhildur Hjartar, skrifaði eiginmanni sínum, Grími, árum saman á berklahælum, lengst af á Vífilstöðum en einnig á Kristnesi og sjúkrahúsum í Reykjavík og á Akureyri. Bréfin eru einstæð heimild um glímu þjóðarinnar við hvíta dauðann, eins og faraldurinn var tíðum nefndur.

Á fyrri hluta síðustu aldar voru berklar ein helsta dánarorsök Íslendinga. Þúsundir létust, einkum ungar konur. Bréfin birta á opinskáan, nístandi og sársaukafullan hátt sögu Svanhildar og fjölskyldunnar og lýsa um leið erfiðu skeiði þjóðarinnar. Leiða lesandann inn í veröld hinna sjúku í persónulegum frásögnum sem snerta hjörtu allra.

Uppruni og æska Ólafs Ragnars birtast hér í nýju ljósi. Hann skrifar inngangskafla og milliþætti sem tengja bréfin við nútímann.

DEILA