Tálknafjörður: gat á sjókví

Frá Tálknafirði.

Matvælastofnun barst  tilkynning frá Arnarlaxi laugardaginn 29. október um gat á nótarpoka einnar sjókvíar Arnarlax við Laugardal í Tálknafirði.

Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit og er viðgerð lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið um 14 cm rifa á 9 m dýpi. Í þessari tilteknu kví voru 99.025 laxaseiði sem sett voru í kvína 17. október sl. og voru þau við útsetningu með meðalþyngd 105,6 gr. Neðansjávareftirlit var áður framkvæmt 16. október sl. og var nótarpoki þá heill.

Matvælastofnun hefur fyrirskipað köfun í allar kvíar á eldissvæðinu sem um ræðir til að tryggja að ekki séu fleiri göt á öðrum kvíum og gengið úr skugga um að viðbragðsáætlunum hafi verið fylgt. Matvælastofnun hefur atvikið til meðferðar. Arnarlax hefur lagt út net í samráði við Fiskistofu til að kanna hvort strok hafi átt sér stað.

DEILA