Snerpa er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2022

Snerpa á Ísafirði

Snerpa er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þriðja árið í röð samkvæmt mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Listi yfir Fyrirmyndarfyrirtækin 2022 var birtur í Viðskiptablaðinu á föstudaginn en 2,8% íslenskra fyrirtækja komast á listann. 

Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2021 og 2020 en rekstrarárið 2019 er einnig notað til viðmiðunar.
  • Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2021 og 2020.
  • Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárunum 2021 og 2020.
  • Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2021 og 2020.
  • Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

DEILA