Patrekshöfn: mikill afli berst að landi

Vestri BA að koma til hafnar í gær. Myndir: Patrekshöfn.

Mikið líf hefur verið í Patrekshöfn síðustu daga. Nýi togarinn Vestri BA landaði 62 tonnum í gær eftir nokkurra daga veiðiferð á botnvörpu. Patrekur BA er á dragnótaveiðum og hefur komið með um 40 tonn í síðustu þremur veiðiferðum.

Núpur BA er gerður út á línu og hann landaði í síðustu viku 43 tonnum.

Jón Árnason, skipstjóri á Vestra BA lengst til vinstri að gera klárt fyrir næsta túr.
Eins og sjá má voru mörg skip í Patrekshöfn í gær.
Mikið var um að vera á Fiskmarkaði Patreksfjarðar.

DEILA