Gunnar Kvaran og Jane Ade Sutarjo í Hömrum

Fyrstu áskriftartónleikar Tónlistarfélagsins á þessu starfsári verða í Hömrum, sal Tónlistarskólans, laugardaginn 8. október kl. 16. Þar koma fram Gunnar Kvaran sellóleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari.

Þau flytja verk eftir Couperin, Beethoven, Chopin, Rachmaninoff og Schumann.

Gunnar Kvaran þarf ekki að kynna, en hann hefur verið einn virtasti sellóleikari landsins í 50 ár og kennari u.þ.b. allra sellóleikara sem hafa verið í fararbroddi undanfarna áratugi, í Sinfóníuhljómsveitinni og annars staðar. Ekki síður er hann þekktur sem einstaklega næmur mannvinur. Honum fylgir sannarlega birta hvert sem hann fer!

Jane stundaði nám í Listaháskólanum, en hún er frá Indónesíu. Hún er eini nemandinn sem hefur lokið bæði einleikaraprófi á fiðlu og píanó.

Jane bjó til að byrja með hjá Gunnari og Guðnýju og lærði íslensku með svo undraverðum hraða að fljótlega gátu samnemendur hennar ekki greint að hún ætti annað móðurmál.

DEILA