Andlát: Magnús Kr. Guðmundsson

Látinn er Magnús Kr. Guðmundsson athafnamaður frá Tungu í Tálknafirði á 93. aldursári.

Eiginkona Magnúsar var Jóna Sigríður Sigurðardóttir og eignuðust þau 8 börn.

Magnús var fæddur og uppalinn á Tálknafirði og var þar útgerðarmaður í rúmlega hálfa öld og mikill aflamaður. Magnús stofnaði 1980 fiskverkunina Þórsberg ásamt fjölskyldu sinni. Magnús var sæmdur  fálkaorðunni árið 2004  fyrir störf að sjávarútvegsmálum. Magnús kom lengi að fiskeldi í Tálknafirði, fyrst þorskeldi og svo silungseldi  og stóð að rekstri Tungusilungs sem vinnur matvöru úr bleikju og silungi.

DEILA