Vísindaport föstudaginn 2. september: Ertu einmana í fjarnámi eða langar þig aftur í nám?

Háskólasetur Vestfjarða, Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Menntaskólinn á Ísafirði bjóða upp á fjölbreytta þjónustu og ólík úrræði.

Föstudaginn 2. september verður boðið upp á menntastefnu í Vísindaporti. Starfsmenn Háskólaseturs, Fræðslumiðstöðvar og MÍ munu kynna fjölbreytta þjónustu fyrir fjarnema og fólk í leit að fræðslu- og námsleiðum á framhalds- og háskólastigi.

Á haustin berst fjöldi fyrirspurna frá fólki á öllum aldri sem langar að skella sér í nám en veit ekki hvar það á að byrja. Einnig er hópur fólks í fjarnámi sem vantar aðstöðu til náms eða langar einfaldlega að hitta aðra fjarnema. Þessar fjölbreyttu spurningar krefjast fjölbreyttra úrræða. Öllum áhugasömum er boðið að koma í Vísindaport og fá kynningu á þjónustu þessara stofnana.

  • Sigþrúður Margrét Gunnsteinsdóttir, verkefnastjóri og Astrid Fehling, kennslustjóri fara yfir þjónustu á vegum Háskólasetursins
  • Dagný Sveinbjörnsdóttir, verkefnastjóri fjallar um fjölbreytt tækifæri á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða
  • Martha Kristín Pálmadóttir, áfanga- og fjarnámsstjóri og Erna Sigrún Jónsdóttir, námsráðgjafi við Menntaskólann á Ísafirði, munu fara yfir fjölbreytta möguleika til náms við Menntaskólann.

Á eftir verður tækifæri til að spyrja spurninga, spjalla og skoða aðstöðu Háskólaseturs og Fræðslumiðstöðvar.

Vísindaportið er opið öllum og hefst stundvíslega klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða á 2. hæð. Erindið fer fram á íslensku, því verður streymt í gegnum webinar/zoom

Hlekkur á Webinar: https://eu01web.zoom.us/j/69264952439 

Viðburður Vísindaportsins á Facebook: https://fb.me/e/1twUcQWL7

DEILA