Nýr framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarmála hjá Kerecis

Dr. Dan Mooradian hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarmála hjá Kerecis og mun taka sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Klara Sveinsdóttir sem verið hefur framkvæmdastjóri rannsóknar-, þróunar-, gæða- og skráningamála mun héreftir einbeita sér að gæða- og skráningarmálum og sitja áfram í framkvæmdastjórn.

Dan á að baki farsælan feril í bæði í rannsóknar- og stjórnunarstörfum og stýrði m.a. stórum þróunarteymum hjá bandarísku lækningavörufyrirtækjunum Baxter og Boston Scientific. Kerecis lauk nýverið 14 milljarða króna hlutafjáraukningu og er ráðning Dans hluti af áætlunum fyrirtækisins um að hraða þróun nýrra vara en markmið fyrirtækisins er að 1/5 af tekjum hvers ár komi að jafnaði frá nýjum vörum. Dan er með doktorsgráðu í meinafræði og hefur undanfarin átt ár haft aðkomu að þróunarstarfi Kerecis sem ráðgjafi og þekkir vel til tækni og reksturs fyrirtækisins.

DEILA