Þriðjudagur 22. apríl 2025

Fjölmenni við opnun útsýnispalls á Bolafjalli

Auglýsing

Útsýnispallurinn á Bolafjalli var formlega opnaður í morgun við hátíðlega athöfn. Það var Pétur Vigfússon, íbúi í Bolungavík, sem klippti á borðann. Fjölmargir lögðu leið sína upp á fjallið til þess að vera viðstaddir athöfnina, m.a. var öll ríkisstjórninn mætt svo og sveitarstjórnarmenn af Vestfjörðum.

Séra Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, sóknarprestur blessaði mannvirkið og auk Jóns Páls Hreinssonar, bæjarstjóra og Páls Daníels Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Eyktar, sem annaðist smíði og hönnun pallsins, fullu ávörp Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra og Þórdís K.olbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Grunnavík og Maríuhornið í baksýn.
Fjölmargir voru viðstaddir, m.a. ráðherrar og sveitarstjórnarmenn.
Hér má sjá ráðherra,verktaka, sýslumann og leikara.
Ríkisstjórnin öll á ystu nöf, samankomin fremst á útsýnispallinum..

Myndir: Kristinn H. Gunnarsson.

Auglýsing

Auglýsing
Auglýsing

Nýtt á BB

Auglýsing

Fleiri fréttir