Píanó­hátíð Vest­fjarða

Í dag og næstu daga er haldin alþjóðleg píanó­hátíð á Vest­fjörðum sem býður upp á píanó­tón­leika á heims­mæli­kvarða.

Áformað er að á hverju ári munu tónlistarmenn bjóða upp á spennandi dagskrá með einstaka listræna sýn og halda meistaranámskeið fyrir nemendur í samfélaginu sem lýkur með nemendatónleikum.

Gert er ráð fyrir að tónleikar verði á Patreksfirði, Tálknafirði og Ísafirði. Ferðinni lýkur með tónleikum í Hörpu í Reykjavík.

Tónleikarnir eru eftirfarandi:

17. ágúst kl. 20 – Tálknafjarðarkirkja

18. ágúst kl. 20 – Félagsheimili Patreksfjarðar

20. ágúst kl. 17 – Hamrar á Ísafirði

21. ágúst kl. 17 – Félagsheimili Patreksfjarðar

Stofnhátíðin í ár er styrkt að hluta af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og Ýlir – Tónlistarsjóði Hörpu.

Það er banda­ríski píanó­leikarinn Andrew J. Yang sem fluttist til Patreksfjarðar í miðjum heims­far­aldri sem er stofnandi Píanó­há­tíðar Vest­fjarða, fyrstu tón­listar­há­tíðina á Vest­fjörðum sem er til­einkuð slag­hörpunni.

DEILA