Uppskrift vikunnar – rækjuþema

Mér finnst rækjur góðar með öllu eða bara eintómar. Hérna eru tvær mjög ólíkar rækjuuppskriftir en ég gæti ekki gert uppá milli þeirra.

Yndislega ferskur og einfaldur rækjukokteill

Á sumrin er fátt betra en að fá sér ferskan rækjukokteil. Þessi er algjört uppáhald hjá mér. Þetta er frábær forréttur fyrir góða steik.

Hráefni:
400 grömm rækjur (að sjálfsögðu frá Kampa)
½ blaðlaukur, fínsaxaður
Rauðar, grænar og gular paprikur, fínsaxaðar
2 matskeiðar hvítlauksolía
2 matskeiðar ferskur kóríander, fínsaxaður
4 matskeiðar ólífuolía
Safi úr einu lime

Aðferð:

Blandið öllum hráefnunum saman og kryddið með salti og pipar. Setjið í glerskálar eða vínglös og skreytið með kóríander og limebátum.

Svo ef það heldur áfram að vera svona napurt er hér önnur rækjuuppskrift bara heitur réttur.

Rækjuofnréttur – líka yndislega einfaldur

Hráefni:

1 bolli soðin hrísgrjón
1 desilítri rjómi
1/4 dós sveppir
150 grömm rækjur (að sjálfsögðu frá Kampa)
3-4 matskeið majones
1-1 1/2 teskeið karrý
Rifinn ostur

Aðferð:

Hrísgrjónin eru sett í eldfast mót og rjómanum hellt yfir. Þar ofan á eru rækjurnar settar og síðan sveppirnir (geymið soðið). Majones, karrý og sveppasoð er hrært saman og hellt yfir. Að lokum er rifnum ost stráð ofan á. Bakað í ofni í 20 mínútur við 200 gráður. Borið fram með hvítlauksbrauði eða smábrauðum.

Verði ykkur að góðu og gangið hægt um gleðinnar dyr um helgina!

Halla Lúthersdóttir.

DEILA