Karfan: Vestramenn í B úrslitum á EM U20

Pètur Már þjálfari Vestra er aðstoðarþjálfari karlaliðs Íslands yngri en 20 ára og Vestra leikmennirnir Hugi og Hilmir Hallgrímssynir eru í liðinu sem leikur  í undanúrslitum Evrópumótsins í Georgíu. Íslendingarnir unnu Svía í gær 77:71 og unnu sér sæti í undanúrslitunum. Leikið er í Georgíu.

Liðið mætir Finnum í dag og hefst leikurinn kl 17:15  og verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði frá leiknum á þessum þræði:

Iceland v Finland boxscore – FIBA U20 European Championship 2022, Division B – 23 July – FIBA.basketball

DEILA