5G komið á Ísafjörð og til Bolungavíkur

Í fréttatilkynningu frá Nova segir að nú hafi Ísafjörður og Bolungarvík bæst í hóp þeirra bæjarfélaga sem hafa aðgang að 5G neti og mörgum bæjarbúum standi því til boða áður óþekktur nethraði. Nú hafa 65 sendar þegar verið settir upp í öllum landshlutum og er áætlað að þeir verði orðnir 200 árið 2024.

Mun meiri afköst og hratt streymi

„Fyrir bæjarbúa þýðir innleiðingin mun meiri afköst en áður hefur þekkst, hvort sem er í gegnum síma eða jarðtengingar, auk þess sem 5G þjónusta mun veita íbúum gífurlega hratt streymi, styttri svartíma, og niðurhal á ofurhraða,“ segir Benedikt Ragnarsson framkvæmdastjóri fjarskipta Nova. 

5G mun að jafnaði skila 150-200 Mb/s hraða á sekúndu og fara reglulega upp fyrir 1.000 Mb/s. „Það þýðir að þeir íbúar sem eru með tæki sem styðja 5G, eru með eina hröðustu nettengingu sem fyrirfinnst á Íslandi og reyndar heiminum öllum. 5G hraði jafnast á við öflugustu ljósleiðaratengingar þar sem þú getur hlaðið niður allt að 2,3 GB á sekúndu og svartíminn er undir 10 millisekúndur,“ segir Benedikt Ragnarsson.

Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova:

„5G Nova er nú þegar komið upp í öllum landshlutum og mun eflast hratt á næstu mánuðum. Fleiri og öflugri sendar auka öryggi landsmanna. Nova hefur fjárfest umtalsvert í innviðum sínum á síðustu árum sem hefur gert félaginu kleift að stíga mikilvæg skref sem þessi og halda áfram að vera leiðandi og í fremstu röð í innleiðingu 5G á Íslandi.”

DEILA