1.074 tonnum bætt við strandveiðipottinn

Frá Bolungavíkurhöfn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra aukið við aflaheimildir til strandveiða um 874 tonn af þorski sem fengust í skiptum fyrir heimildir á makríl á skiptimarkaði, 50 ónýtt tonn sem voru færð frá frístundaveiðum og 150 ónýtt tonn vegna línuívilnunar. Samtals er því 1.074 tonnum bætt við strandveiðipottinn.

Með þessu hækkar hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks upp í rúm 5% og hefur ekki svo stórum hluta leyfilegs heildarafla þorsks áður verið ráðstafað til strandveiða.

Einnig hefur matvælaráðaherra komið á þeirri breytingu til hagræðingar fyrir strandveiðisjómenn að Fiskistofa mun sjálfkrafa fella strandveiðileyfi úr gildi þegar strandveiðar verða stöðvaðar með auglýsingu í Stjórnartíðindum.

Því er ekki er lengur þörf á að óska eftir niðurfellingu strandveiðileyfis til Fiskistofu 20. dag mánaðar áður en til stóð að hætta veiðum.

DEILA