UMFÍ: Ísfirðingarnir mættir á landsmót í Borgarnesi

Þátttakendur á miðjum aldri og eldri eru nú að streyma til Borgarness en Landsmót UMFÍ 50+ hefst með keppni í boccía í fyrramálið. Boccía er ein af fjölmennustu greinum mótsins. Ísfirðingar fjölmenna á mótið sem fer fram um helgina.

Á þriðja hundrað manns yfir miðjum aldri eru skráðir til leiks á mótið í mörgum greinum.

Ísfirðingarnir mættir á landsmót í Borgarnesi

Þeir voru glaðir og kátir fyrstu þátttakendurnir sem komu til að ná í mótsgögnin fyrir Landsmót UMFÍ 50+ í þjónustumiðstöðina í Borgarnesi.

Þetta eru þeir Guðjón Bjarnason, Reynir Pétursson og Finnur Magnússon, sem allir ætla að keppa á mótinu í boccía fyrir liðið Kubba 3 frá Ísafirði. Kubbi er aðildarfélag Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) og er von á miklum fjölda þátttakenda þaðan á mótið í Borgarnesi. Fjórði maðurinn er Salmar Jóhannsson, sem hefur skráð sig í sund, pútt og golf.

Þeim félögunum fannst vindurinn heldur vera að flýta sér í Borgarfirðinum, eins og þeir orðuðu það en eins og flestir vita er alltaf blankalogn á Ísafirði.

DEILA