Þríburar ljúka sveinsprófunum í rafvirkjun

Myndin er tekin þegar þeir voru að ganga frá básunum að loknu verklega prófinu í raflögnum og stýringum. Talið frá vinstri, Guðfinnur Ragnar, Þórir Örn og Gunnar Már Jóhannssynir. Mynd: rafmennt.is

Þríburabræðurnir Guðfinnur Ragnar, Gunnar Már og Þórir Örn, sem eru búsettir í Bolungavík, luku verklegum hluta sveinsprófs í rafvirkjun á föstudaginn.

Þeir útskrifuðust úr rafvirkjun sem viðbót við 4. stig vélstjórn frá Tækniskólanum í desember 2021.

Tveir þríburanna vinna hjá Rafverk Alberts Guðmundssonar ehf í Bolungavík og sá þriðji hjá Orkubúi Vestfjarða.

 

DEILA