Nýr doktor í þjóðfræði á Vestfjörðum

Dagrún Ósk Jónsdóttir við doktorsvörnina.

Í gær varði Dagrún Ósk Jónsdóttir frá Kirkjubóli í Tungusveit í Strandabyggð doktorsritgerð sína í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Efni ritgerðarinnar ber heitið Fangar hefðarinnar: Konur og kvenleiki í íslenskum þjóðsögum. 

Í ágripi segir að rannsóknin snúi að birtingarmyndum kvenna og kvenleika í íslenskum þjóðsögum. „Þjóðsagnir geta sagt okkur margt um það samfélag sem þær tilheyra og endurspegla þann hugmyndaheim og jarðveg sem þær spretta úr. Í rannsókninni er unnið með sagnir í íslenskum þjóðsagnasöfnum frá 19. og 20. öld og gerð er grein fyrir þeim boðskap sem sagnirnar innihalda varðandi hlutverk kvenna og æskilega hegðun þeirra út frá þjóðfræði og kynjafræðilegum sjónarhornum. Sjónum er sérstaklega beint að óhlýðni, uppreisn og andófi kvenna og ofbeldi gagnvart konum og viðhorfum til þess. Markmið rannsóknarinnar er að varpa nýju ljósi á það hversu rótgrónar hugmyndir um hlutskipti kvenna eru í raun og veru og að vera mikilvægt innlegg í jafnréttisumræðuna.“

Rannsóknin sýnir að þrátt fyrir konurnar í sögnunum séu oft í uppreisn við það sem talið er kvenlegt, dugir það ekki til. Sagnirnar styðja yfirleitt við ríkjandi hugmyndir um hvað þóttu vera æskileg hlutverk og hegðun kvenna og þegar konurnar fara gegn þessum hugmyndum í sögnum birtast þær oft í neikvæðu ljósi, sem „mengandi“ eða hættulegar eða er refsað, oftast af körlum eða kirkjunni.

Dagrún Ósk Jónsdóttir er fædd árið 1993 og að mestu uppalin á Kirkjubóli á Ströndum. Dagrún hefur unnið að margvíslegum verkefnum meðfram náminu, sem tengjast til dæmis ferðaþjónustu, sýningagerð, fyrirlestrahaldi og viðburðastjórnun.Hún hefur í mörg ár séð um Náttúrubarnaskólann á Ströndum. Hún hefur einnig ritstýrt og gefið út bækur tengdar Ströndum og heldur úti hlaðvarpi um rannsóknir og miðlun á þjóðfræði.

DEILA