Síðasti fundurinn

Á myndinni eru f.v. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri, Jóhanna Ösp Einarsdóttir, Ingimar Ingimarsson, Karl Kristjánsson á teams, Árný Huld Haraldsdóttir oddviti og Embla Dögg B. Jóhannsdóttir.

Þann 12. maí var síðasti reglulegi fundur fráfarandi sveitarstjórnar Reykhólahrepps.

Við það tækifæri var meðfylgjandi mynd tekin og er hún dæmigerð fyrir fundahöld síðari helming kjörtímabilsins, en þá urðu fjarfundir algengt fundarform.

Í fundargerðinni má sjá hvaða mál voru afgreidd, t.d. verksamningur um endurbætur á Reykhólahöfn, yfirtaka Bríetar leigufélags á íbúðum við Hólatröð, samráðsáætlum um frágang vegna Vestfjarðavegar, brunavarnaráætlun og fleira má telja.

„Að sitja í sveitarstjórn í litlu samfélagi eins og Reykhólahreppi er oft og tíðum ekki auðvelt, því ákvarðanir sem þarf að taka snerta stundum vini og fjölskyldu sveitarstjórnarfólks. Fráfarandi sveitarstjórn hefur staðið sig með sóma og unnið að krefjandi verkefnum af heilindum.“ segir í fréttinni á heimasíðu Reykhólahrepps.

DEILA