Jakob Valgeir kaupir 20% í HG

HG er kvótahæsta vestfirska fyrirtækið.

Eigendur 19,64% hlutar í Hraðfrystihúsinu Gunnvör í Hnífsdal hafa selt hlut sinn í félaginu. Kaupandi er Jakob Valgeir ehf., sem rekur hundrað manna útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Bolungarvík. Söluverð hlutarins er trúnaðarmál.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Jakob Valgeir ehf.

Hraðfrystihúsið Gunnvör er máttarstólpi í atvinnulífi Vestfjarða og gegnir mikilvægu samfélagshlutverki í Hnífsdal. Fyrirtækið rekur frystitogara, ísfiskskip, innfjarðarrækjubáta, fiskvinnslu í landi og fiskeldisstarfsemi gegnum dótturfélag. Um 130 manns starfa hjá fyrirtækinu. 

Seljendur hlutarins eru systkinin Guðmundur, Kristinn Þórir, Ólöf Jóna og Steinar Örn Kristjánsbörn. Hluturinn hefur verið í eigu fjölskyldunnar í áratugi, en að vel athuguðu máli ákváðu þau að láta staðar numið og bjóða Jakobi Valgeiri hlutinn til kaups. „Það skiptir okkur miklu máli að reksturinn í Hnífsdal sé traustur og fyrirtækið verði áfram hornsteinn í atvinnulífinu á staðnum. Við þekkjum Jakob Valgeir af góðu einu, vitum að hann hefur sterkar taugar til svæðisins og skilur tækifærin sem felast í rekstri félagsins í Hnífsdal,“ segir Kristinn, talsmaður seljendanna.

Jakob Valgeir segist þakklátur fyrir að vera treyst fyrir stórum hlut í einu mikilvægasta fyrirtæki Vestfjarða. „Það er spennandi verkefni að fylgja þessu sögufræga fyrirtæki inn í framtíðina. Reksturinn hefur gengið vel og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum, svo félagið haldi áfram að vaxa og dafna ásamt samfélaginu sem það starfar í. Ég hef mikla trú á þessari fjárfestingu og framtíð félagsins,“ segir Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri Jaboks Valgeirs ehf.

DEILA