Þjóðleikshúsið: frumsýnir Prinsinn – sýnt á Ísafirði

Miðvikudaginn 27. apríl frumsýnir Þjóðleikhúsið, í samstarfi við Frystiklefann á Rifi, nýtt íslenskt leikrit, Prinsinn, eftir Maríu Reyndal og Kára Viðarsson, byggt á sönnum atburðum. Verkið er byggt á reynslu Kára sem horfðist í augu við það sautján ára gamall að eiga von á barni. En hversu áreiðanlegt vitni er maður í sinni eigin sögu? Er hægt að muna hlutina rétt? María Reyndal leikstýrir verkinu, en auk Kára leika þau Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Sólveig Guðmundsdóttir og Birna Pétursdóttir í sýningunni. Frumsýnt verður á Rifi og í framhaldinu verður sýnt víða um land. 

Í fréttatilkynningu segir að Prinsinn er alveg örugglega langbesta sjoppan undir Jökli, og það er þar sem hlutirnir gerast, að nóttu sem degi – sérstaklega ef maður vinnur í sjoppunni og er með lyklana! 

Í verkinu kynnumst við manni á fertugsaldri sem bíður í ofvæni eftir því að barn hans komi í heiminn. Eftirvænting og kvíði takast á í huga hans, og atburðir sem áttu sér stað tveimur áratugum fyrr fara að sækja á hann: 17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst?  

Hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt leikrit, sem talar beint til okkar. 

Leikferð um landið 

Alls verður Prinsinn sýndur á sjö stöðum víðs vegar um landið áður en sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu í haust. Miðasala er í fullum gangi á leikhusid.is. 

 
27. apríl: Rif, Frystiklefinn 

28. apríl: Rif, Frystiklefinn 

29. apríl: Rif, Frystiklefinn 

3. maí: Ísafjörður, Edinborgarhúsið  
12. maí: Borgarnes, Hjálmaklettur 

13. maí: Reykjanes, Hljómahöll 
17. maí            : Akureyri, Hof 

18. maí            : Akureyri, Hof 

19. maí            : Egilsstaðir, Valaskjálf 

 
 
Höfundar 

María Reyndal og Kári Viðarsson 

Leikstjóri 

María Reyndal 

Leikmynd 

Guðný Hrund Sigurðardóttir og Egill Ingibergsson 

Búningar 

Guðný Hrund Sigurðardóttir 

Tónlist 

Úlfur Eldjárn 

Hljóðhönnun 

Úlfur Eldjárn 

Ásta Jónína Arnardóttir 

Lýsing 

Jóhann Friðrik Ágústsson 

DEILA