Samsöngur í Hömrum

Síðast var góð mæting.

Samsöngskemmtun í Hömrum á miðvikudaginn 27. apríl kl 17:00.

Samsöngurinn fyrir páska heppnaðist svo vel að ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn.

Öllum er boðið að koma og syngja saman í Hömrum, sal Tónlistarskóla Ísafjarðar í fjöldasöng miðvikudaginn 27. apríl kl. 17.
Undirleikur og forsöngur: Bergþór Pálsson, Rúna Esradóttir og Pétur Örn Sigurðsson.
Textum verður varpað upp á vegg. Boðið verður upp á vöfflur.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir

DEILA