Naust Marine opnar starfsstöð á Ísafirði

Naust Marine hefur opnað starfsstöð að Suðurgötu 12 á Ísafirði í Vestrahúsinu sem staðsett er við höfnina. Starfsstöðin er í samfélagi við ýmis önnur fyrirtæki og stofnanir.

Með opnuninni hyggst Naust Marine auka þjónustustig við viðskiptavini sína á landsvísu. 
Sigurður Freyr Kristinsson er í forsvari fyrir fyrirtækið á Ísafirði.
Naust Marine er alþjóðlegt tæknifyrirtæki í sjávarútvegi sem er leiðandi í hönnun og framleiðslu á rafdrifnum togvindukerfum og stjórnbúnaði.

Sigurður Freyr Kristinsson.

Höfuðstöðvar Naust Marine eru á Íslandi en fyrirtækið er með útibú á Spáni, Bandaríkjunum og Rússlandi.  Alls starfa hjá fyrirtækinu um 35 starfsmenn, þar af um 22 starfsmenn á Íslandi.

DEILA