Mottumars hefst í dag

Mottumars sokkar 2022

Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum, hefst í dag 1. mars.

„Í Mottumars tökum við höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öflum fjár fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins. Í ár minnum við karlmenn sérstaklega á að kynna sér hvaða einkenni geta bent til krabbameins og hvetjum þá til að leita fljótt til læknis verði þeir varir við þau einkenni,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Krabbameinsfélagið hefur að markmiði að fækka þeim sem greinast með krabbamein, lækka dánartíðni þeirra sem greinast og bæta lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein og fjölskyldna þeirra.

Starfsemi félagsins byggir alfarið á styrkjum einstaklinga og fyrirtækja og með kaupum á Mottumarssokkum tekur fólk þátt í að fjármagna krabbameinsrannsóknir, ráðgjöf og stuðning, fræðslu og forvarnir.

DEILA