Ísafjarðarbær: bæjarstjórinn ráðinn framkvæmdastjóri Þjóðkirkjunnar

Framkvæmdanefnd kirkjuþings hefur gengið frá ráðningu Birgis Gunnarssonar til að gegna starfi framkvæmdastjóra rekstrarstofu Þjóðkirkjunnar.

Alls bárust 44 umsóknir um stöðuna.

Birgir er bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ og því er ljóst að hann lætur af því starfi í lok kjörtímabilsins.

Áður var Birgir forstjóri Reykjalundar, endurhæfingarmiðstöðvar í Mosfellsbæ, í þrettán ár en þar áður var hann forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðarkróki í sextán ár.

Birgir hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum s.s. setið stjórn Norræna heilbrigðisháskólans í Gautaborg, verið formaður Landssambands heilbrigðisstofnana, formaður Félags forstöðumanna heilbrigðisstofnana og ýmislegt fleira.

Birgir mun hefja störf í júní 2022.

Birgir er fæddur 1963 og uppalinn á Siglufirði. Hann er menntaður rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Bifröst og hefur einnig lokið námi í rekstri og stjórnun frá Háskólanum í Gautaborg.

Frá þessu er greint á vef Þjóðkirkjunnar.

DEILA