Árneshreppur: þorrablót var á föstudaginn

Frá þorrablótinu. Mynd: Litli Hjalli.

Það var haldið þorrablót í Árneshreppi á föstudaginn, næstsíðasta dag Þorra. Það er með því fámennasta sem hefur verið segir á vef Litla Hjalla í Árneshreppi. 16 manns komu á þorrablótið en 2 komu ekki, eru því aðeins 18 manns í hreppnum um þessar mundir.

„Sauðfjárræktarfélagið Von hélt þorrablótið og var maturinn pantaður frá Múlakaffi í Reykjavík og kom hann með flugi með Norlandair. Þetta var raunverulega í síðasta lagi sem hægt var að halda þorrablót svo það bæri það nafn með réttu, því Þorraþræll er í dag og konudagur á morgun [sunnudag] og góa byrjar.“

DEILA