Arnarlax hefur seiðaframleiðslu að Hallkelshólum í Grímsnesi

Arnarlax festi nýverið kaup á seiðaframleiðslu Fjallalax að Hallkelshólum í Grímsnesi, og hefur þar með hafið rekstur í þriðju eldisstöðinni í sveitarfélaginu Ölfusi. Í síðustu viku veitti Matvælastofnun svo fiskeldisstöðinni 100 tonna rekstrarleyfi fyrir seiða- og mateldi á lax og bleikju. Framleiðslan í stöðinni er þegar hafin og hafa um 500 þúsund hrogn verið tekin í hús.

Stöðvarstjóri Fjallalax að Hallkelshólum er Matthew Chernin, frá Kaliforníu í Bandaríkjunum. Matthew fluttist hingað til lands, nánar tiltekið til Selfoss, á seinasta ári. Hann hefur áður starfað við fiskeldi í Washington-ríki í Bandaríkjunum, Sri Lanka og síðast í Noregi, þar sem hann lauk einnig meistaranámi í ræktun sjávarafurða (e. aquaculture) við NMBU-háskólann (Norges miljø- og biovitenskapelige universitet).

Ferðasjóður Sólheima fékk gangsetningargjöf
Stöðin að Hallkelshólum var byggð af miklum myndarskap á sínum tíma af heimafólkinu Gísla Hendrikssyni og Rannveigu Björgu Albertsdóttur sem einnig hafa látið sig starfsemina að Sólheimum miklu varða. Til að fagna því að laxeldi sé hafið í stöðinni ánafnaði Arnarlax 500.000 kr. í ferðasjóð fatlaðra íbúa Sólheima.


Arnarlax er sem áður segir þegar með starfsemi á tveimur öðrum stöðum í Ölfusi, sem orðið er eitt fremsta fiskeldissveitarfélag landsins en fjölmörg eldisfyrirtæki hafa valið sér stað þar. Starfsemi Arnarlax í Ölfusi fer ört vaxandi og starfa nú 15 manns hjá fyrirtækinu þar. 

DEILA