Strandabyggð: hefja óformlega viðræður við Reykhólahrepp

Rækjuverksmiðjan Hólmadrangur ehf á Hólmavík.

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum á þriðjudaginn að hefja óformlegar viðræður við Reykhólahrepp um sameiningu sveitarfélaganna. Í desember gerði sveitarstjórn Reykhólahrepps sams konar samþykkt.

Strandabyggð hafði upphaflega kannað áhuga á sameiningu sveitarfélaganna þriggja í Strandasýslu, Strandabyggðar, Kaldrananeshrepps og Árneshrepps við Dalabyggð og Húnaþing vestra. Ekki reyndist áhugi fyrir því í Kaldrananeshreppi né í Árneshreppi.

Í Dalabyggð var fremur áhugi á viðræðum við Húna­þings vestra ann­ars vegar og sveit­ar­stjórnum Stykk­is­hólms­bæjar og Helga­fells­sveitar hins vegar. Húnaþing vestra hafði ekki áhuga á viðræðum við Strandabyggð a.m.k. að svo stöddu.

Sveitarstjórn Strandabyggðar leggur til að viðræðurnar við Reykhólahrepp hefjist hið fyrsta.

DEILA