Covid19: 5 smit í gær

Fimm smit greindust á Vestfjörðum í gær. Tvö þeirra voru á þingeyri og eitt á Patreksfirði, Ísafirði og í Bolungavík.

Alls eru 58 virk smit á Vestfjörðum. Á Patreksfirði eru 42 smit, 5 á Ísafirði, 3 á Þingeyri og tvö á Reykhólum, Bíldudal, Bolungavík og í Súðavík.

Rúmlega 1200 smit voru greind í gær á landinu öllu. Á Landsspítalanum eru 37 sjúklingar inniliggjandi með covid og þar af eru 3 á gjörgæslu.

https://www.ruv.is/kveikur/covid/

DEILA