Jólalestin á Vestfjörðum

Núna í desember er í gangi frumkvöðla-jólaverkefni sem ber yfirskriftina “Jólalestin” – en er þó alls óskyld Jólalest Coca Cola. Verkefnið er unnið í samstarfi við Fab Lab Nýsköpunarsmiðju á Ísafirði og stutt af fjölmörgum fyrirtækjum hér á Vestfjörðum.

Vestfjarðastofa kemur inn í þetta samstarf að auki þar sem markmið verkefnisins er að auka sýnileika Vestfjarða.

Ábyrgðaraðili verkefnisins og sá sem er í forsvari fyrir Jólalestina út á við, er Einar Mikael Sverrisson.

Smíðaðir verða 12 jólasleðar og 12 jólapóstkassar, eitt sett fyrir hvert byggðarlag á Vestfjörðum.
Jólasleðarnir eru fullbúnir sýningarsleðar með ljósaborði. Smíðin á sleðunum er í samstarfi við Verkmenntaskólann á Ísafirði, FabLab-smiðjan hannar og sker út sleðana, rafmagnsdeildin útbýr ljósaborðin og málmsmíðadeildin sér um að sjóða saman undirgrindina. Það sama á við um póstkassanna, voru þeir hannaðir og skornir út í FabLab og settir saman af smíðadeild skólans.
Hver póstkassi er þar að auki handmálaður af listakonunni Marsibil Kristjánsdóttur á Þingeyri.

Póstkassar verða staðsettir í hverjum grunnskóla fyrir sig og voru bréf og bréfsefni hönnuð og prentuð af Pixel, sérstaklega fyrir verkefnið.  Börnin skrifa jólasveininum bréf þar sem þau segja frá hvaða góðverk þau ætla að gera í desember auk þess að geta spurt hann spurninga ef eitthvað brennur á þeim. Bréfin eru sett í póstkassann þangað sem hjálparhellur jólasveinsins munu koma og sækja þau og afhenda honum bréfin.  Hvert og eitt barn mun svo fá handskrifað bréf til baka frá sjálfum jólasveininum, auk þess að fá að gjöf jólaóróa sem hannaður er af nemanda í 10.bekk grunnskólans á Suðureyri, að sjálfsögðu útskorinn í FabLab.

Fullbúnir sleðar munu svo gleðja börn og fullorðna þegar nær dregur jólum þegar þeim verður rennt í gegnum bæi Vestfjarða með tilheyrandi gleði, töfrum og skemmtun.

Þar að auki mun sannkölluð jólastuttmynd vera frumsýnd í kringum jólin – þar sem glænýr jólasveinn verður t.d kynntur til leiks þar sem horfið er frá þessum klassíska rauða og þeim gömlu íslensku.

Það er svo sannarlega nóg um að vera þegar kemur að Jólalestinni.

Verkefnið er sem áður sagði unnið í samstarfi við Vestfjarðastofu og miðar að því að sýna í verki, mikilvægi nýsköpunar á Vestfjörðum, upphefja list og verkgreinar og auka sýnileika Vestfjarða.

DEILA