Kerecis á leið á hlutabréfamarkað – gæti verið 90 milljarða króna virði

Kerecis á Ísafirði er á leið á hlutabréfamarkað og er helst horft til þess að skrá það í Svíþjóð. Vonir standa til þess að fyrirtækið geti verið metið á allt að 700 milljónir dollara við skráningu eða um 90 milljarða íslenskra króna. Gengi það eftir yrði Kerecis 6. verðmætasta íslenska félagið á hlutabréfamarkaði.

Marel er verðmætast en það er metið á um 650 milljarða króna. Næst koma tveir bankar Arionbanki og Íslandsbanki sem eru metnir á um 310 og 250 milljarða króna. Önnur íslensk fyrirtæki á hlutabréfamarkaði sem eru verðmætari en Kerecis eru Síldarvinnslan, Brim og Kvika. Á stöplaritinu má sjá Arctic Fish í 20. sæti metið á 35 milljarða króna. Arnarlax er hins vegar verðmesta fyrirtækið á Vestfjörðum, en það er metið á nærri 70 milljarða króna í kauphöllinni í Olsó.

Hröð stækkun

Velta Kerecis jókst um 70% á síðasta reikningsári , sept 20- sept 21, frá því næsta á undan. Voru tekjur fyrirtækisins nærri 4 milljarðar króna. Rekstraráætlun félagsins gerir ráð fyrir að tekjurnar vaxi í 6,5 milljarða króna eða um 60% á yfirstandandi rekstrarári sem lýkur í september 2022. Tap varð um hálfa milljón dollara á síðasta rekstrarári eða rúmlega 60 milljónir króna.

Guðmundu Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis segir niðurstöðuna ánægjulega í ljósi hraðs vaxtar og neikvæðra áhrifa af covid19. Lögð er mest áhersla á auka söluna í Bandaríkjunum. Kerecis mun áfram leggja áherslu á vöxt umfram það að skila hagnaði næstu árin að sögn Guðmundar. Hann segir mikilvægt að auka markaðshlutdeild félagsins næstu árin. Skv. frétt Viðskiptablaðsins í síðustu viku á Kerecis í viðræðum um kaup á bandarísku félagi í heilbrigðisgeiranum og verði af kaupunum yrðu það milljarða króna viðskipti.

Helsta vara Kerecis er sáraroð unnið úr þorski til að meðhöndla þrálát sár, til dæmis hjá sykursjúkum, í bráðaáverkum og í skurðstofuaðgerðum.

DEILA