Kiwanis Ísafirði: sviðaveislan á laugardaginn

Félagar Kiwanis unnu í vikunni að því að svíða hausana.

Árlega sviðaveisla Kiwanisklúbbsins Bása verður haldin í Kiwanishúsinu, laugardaginn 30. október nk.  Húsið opnar kl. 19. Vegna covid19 féll veislan niður í fyrra.

Kiwanismenn leggja góðum málum lið og sviðaveislan er fjáröflun fyrir þá starfsemi.

Boðið er upp á afbragðs svið í góðum félagsskap og tekjurnar renna til góðra málefna.

  

DEILA