Ísafjarðarbær: Bæjarfulltrúi gerir bótakröfu á hendur Ísafjarðarbæjar og biðst lausnar

Sif Huld Albertsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Sjótækni.

Sif Huld Albertsdóttir bæjarfulltrúi Ísafjarðarbæjar hefur gert bótakröfu  á hendur Ísafjarðarbæ vegna langvarandi og ótvíræðs eineltis í sinn garð.
Sif Huld hefur jafnframt beðist lausnar frá störfum sínum sem bæjarfulltrúi sem og öðrum verkefnum sem því fylgja. Sif Huld hefur setið í bæjarstjórn síðastliðin þrjú ár fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.

,,Ástæðan fyrir því að ég biðst lausnar er sú að í tæpt hálft ár hefur staðið yfir rannsókn á einelti að hálfu embættismanns Ísafjarðarbæjar gegn mér. Ísafjarðarbær fékk ráðgjafafyrirtækið Attentus til að taka við málinu og greina þann djúpstæða vanda sem við stóðum fyrir. Í lok mars kynnti svo Attentus niðurstöðu ítarlegrar greiningar sem var unnin var með viðtölum við vitni og aðra tengda málinu. Niðurstaðan var að um einelti var að ræða og ljóst að ég hafði ítrekar vakið athygli á þessum samskiptum.

Í skýrslunni var einnig niðurstaða að sveitarfélagið hafi brugðist með því að aðhafast ekki í málinu fyrr, þar sem ég hafði oft sagt frá erfiðum og djúpstæðum samskiptavanda. Ef sveitarfélagið  hefði brugðist við strax hefði það getað orðið til þess að eineltið hefði ekki orðið eins alvarlegt og langvarandi. Ég gaf strax út að ég væri tilbúin í sáttameðferð en fékk þau skilaboð að hinn aðilinn væri ekki tilbúin til sátta. En eftir um sjö vikna töf vegna andsvara og seinagangs leggur Ísafjarðarbær til sáttarmeðferð. 

Ísafjarðarbær hefur ekki beðist formlega afsökunar á því hvernig málið hefur þróast, hvað þá á eineltinu sjálfu. Mér finnst stjórnsýslan hafa brugðist í þessu máli og því treysti ég mér ekki til að starfa áfram sem bæjarfulltrúi. 

Vegna þessa seinagangs og aðgerðaleysis hef ég ákveðið að gera bótakröfu á hendur Ísafjarðarbæjar, þar sem niðurstaðan var ótvírætt, langvarandi einelti. Ég hef falið Sævari Þór Jónssyni lögmanni að gæta réttar míns í málinu.

Ég vil þakka bæjarfulltrúum kærlega fyrir samstarfið á síðustu þrjú árin og ég vil sérstaklega þakka íbúum Ísafjarðarbæjar innilega fyrir það traust að fá að starfa í þeirra þágu, en á meðan ég get ekki treyst kerfinu get ég ekki unnið fyrir kerfið í þágu íbúanna.”

DEILA