Ísafjarðarbær: Mikil hætta á gróðureldum

Eftirfarandi tilkynning kemur fram á vef Ísafjarðarbæjar.

Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri slökkviliðs Ísafjarðarbæjar, vill árétta við alla íbúa fara að ítrustu gát nú þegar mikil sina er í landi sveitarfélagsins og mjög þurr trjágróður. „Öll meðferð með opinn eld úti í náttúrunni er hreinlega hættuleg þessa dagana,“ segir Sigurður. „Það getur skapast hættuástand ef sinueldur verður laus og mikil verðmæti geta farið í súginn á skömmum tíma,“ bætir hann við.

Ef fólk verður vart við gróðurelda á strax að hringja í 112. Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr hættu af gróðureldum og einnig inn á www.grodureldar.is

DEILA