STÆRSTA SMJÖRKLÍPA ÍSLANDSSÖGUNNAR

Í aðdraganda alþingiskosninga er vert að benda á þá stóru villu sem er í meðferð auðlinda okkar.  Auðlinda sem skópu okkar velferð sem um langan tíma setti okkur í efstu sæti hvað varðar kjör þegnanna. Einnig hvað varðaði litla sem enga spillingu,hvar við nú hröpum niður listann. 

Til að réttlæta ranglátt kvótakerfi í sjávarútvegi var sett á svokallað veiðigjald. Í stað þess að skifta um fiskveiðistjórn og viðurkenna mistök þeirrar stjórnunar sem hefur skilað okkur helmingi minni afla,auk stórkostlegar byggðaröskunar var veiðigjaldið sett á til að slá ryki í augu almennings.  Vestfirðingar hafa orðið hvað harðast úti,en eru þó með fengsælustu fiskimið landsins nánast upp í kálgörðum.


SMJÖRKLÍPAN GEKK UPP.

Árangurinn var líka góður,kjörnir fulltrúar bitu á agnið. Rifrildi hefur staðið síðan hvort veiðigjöld séu of há eða lág,í stað þess að taka á rót vandans. Segja má að Oligarkar hafi orðið til með þessu „Sovétkerfi“ sem hefur hvað harðast bitnað á vestfirðingum. Ég hygg að hlakki í Oligörkunum sem gleðjast yfir vel heppnaðri smjörklípu


ÞURFTUM HVORUGT ÞEGAR SAMFÉLAGIÐ VAR BYGGT UPP.


Staðreyndin er sú að forsendur fyrir ofveiði (svarta skýrsla Hafró) var röng. Það hefur verið sannað með gögnum og rökum. Kjörnir fulltrúar verða að hafa kjark til að viðurkenna mistök.  Þeir flokkar sem innleiddu kvótakerfið og framsalið bera mikla ábyrgð á varðveislu þess. Þeir hafa æ síðan varið það af hörku og undarlegt til þess að vita að flokkur sem kennir sig við frelsi einstaklingsins,ver það með kjafti og klóm.

Eitt sinn áttu Vestfirðingar kempur eins og Matthías Bjarnason er var síðasti sjávarútvegsráðherrann sem fór ekki í blindni eftir veiðiráðgjöf Hafró og hafði kjark til að velja sóknarmark en ekki kvóta. Sá mæti maður Einar Oddur sá einnig mistökin og mælti um kvótakerfið :“ Þarna hefur okkur stórlega mistekist“. Orð sem verða lengi í minnum höfð. Blessuð sé minning þeirra.



Fróðlegt er að bera saman pólitíkina í dag og fyrrum.


Enginn munur er á stefnu Sjálfstæðis,Framsóknar og Vinstri grænna.  Þar er allt fallið í eina sæng með að verja kvótakerfið.  Hvað varð um slagorðin „stétt með stétt“ og „Báknið burt“.  Flokkur Samfylkingarinnar virðist blýastur í veiðigjaldaumræðunni sem og Viðreisn.  Smjörklipan virkar því miður. Allt er fallið í sama „framsóknarflórinn“


Góðir lesendur. Við gerum þá kröfu til þeirra frambærilegu frambjóðenda til alþingis að þeir kynni sér vel smörklipuna veiðigjald,og misheppnaða fiskveiðistjórnun sem nefnist kvótakerfi. Við þurftum hvorugt þegar samfélagið var byggt upp.

Stefán Skafti Steinólfsson
Áhugamaður um fiskveiðar og vinnslu

DEILA