Fáðu þér G-Vítamín!

Frítt er inn á valin söfn í samstarfi við sveitarfélög um land allt miðvikudaginn 10.febrúar.

Listi yfir söfnin birtist á morgun á gvitamin.is.


Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur.
Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín.
Miðvikudaginn 10.febrúar er G-vítamín dagsins að „Gleyma sér“. Því er tilvalið að fara á safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni.


Í fréttatilkynningu frá Geðhjálp segir: „Endilega nýtið tækifærið, ef ekki á þeim degi, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa sér að gleyma sér. Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt á gvitamin.is. Það þarf ekki að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum.“

DEILA