Vestri: Chechu Meneses til liðs við Vestra

Miðvörðurinn öflugi, Chechu Meneses, er genginn til liðs við Vestra.

Meneses, sem er 25 ára spánverji, spilaði hér á landi með Leikni Fáskrúðsfirði á síðasta tímabili, skoraði hann 5 mörk í 12 leikjum.

Meneses er miðvörður að upplagi, en getur líka spilað sem djúpur miðjumaður eða vinstri bak. Hann er væntanlegur  til landsins í febrúar.

Þetta kemur fram á vefsíðu Vestra.

DEILA