Hvest: tæki fyrir 20 m.kr.

Meðfylgjandi er mynd af Söru Guðmundsdóttur svæfingarhjúkrunarfræðingi og Magneu Ósk Sigrúnardóttur hjúkrunarfræðingi með nýju vélina.

Alls söfnuðust 20 milljónir króna í söfnuninni Stöndum saman Vestfirðir sem þær Steinunn G. Einarsdóttir, Tinna Hrund Hlynsdóttir og Hólmfríður Bóasdóttur stóðu að.

Að sögn Gylfa Ólafssonar voru keypt fyrir söfnunarféð:

  • Fjórar súrefnissíur sem eru á hjúkrunarheimilinu Berg í Bolungavík, hjúkrunarheimilinu Tjörn á þingeyri , sjúkrahúsinu á  Patreksfirði og bráðadeild sjúkrahússins á Ísafirði. Tvær BiPap ytri öndunarvélar og er önnur á bráðadeildinni á Ísafirði og hin á sjúkrahúsinu á  Patreksfirði.
  • Ein hágæða svæfingavél. Hún er á skurðdeild sjúkrahússins á Ísafirði.
  • Eitt greiningartæki fyrir blóðrannsóknir sem er á rannsóknadeild sjúkrahússins á Ísafirði.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða þakkar fyrir þessar höfðinglegu gjafir.

 

DEILA