Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða hafa gert með sér samstarfssamning. Samningurinn veitir félagsmönnum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum greiðari aðgang að námskeiðum Fræðslumiðstöðvar. Starfsmenntasjóður FOS-Vest mun greiða fyrir þátttöku félagsmanna á námskeiðum miðstöðvarinnar. Hámarksstyrkur hvers félagsmanns á hverju tólf mánaða tímabili er samkvæmt reglum sjóðsins hverju sinni. Samningurinn er tilraunaverkefni til loka ársins 2020.
Hagsmunir aðila FOS-Vest og Fræðslumiðstöðvar fara saman með gerð samningsins, segir í tilkynningu frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða , en það er að efla sí- og endurmenntun í heimabyggð. Með aukinni þátttöku í símenntun og endurmenntun má búast við að hæfni og þekking á vinnumarkaði aukist sem og velferð.
Þetta er eitt af markmiðum sóknaráætlunar fyrir Vestfirði að tryggja aðgengi að menntun og með því stuðla að hækkuðu menntunarstigi í fjórðungnum.
Sædís María Jónatansdóttir forstöðumaður vonast til þess að samstarfssamningurinn verði til þess að auka þátttöku félagsmanna FOS-Vest í símenntun og endurmenntun.