Kerecis valinn vaxtarsproti ársins

Frá afhendingu viðurkenninganna, talið frá vinstri, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, Ingólfur Guðmundsson, forstjóri CRI, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Pure North Recycling, og Árni Sigurjónsson, formaður SI.

Fyrirtækið Kerecis hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, afhenti Vaxtarsprotann í morgun í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal.

142% veltuaukning milli ára

Kerecis hóf starfsemi árið 2013 en fyrirtækið framleiðir afurðir byggðar á affrumuðu þorskroði, sem hafa jákvæð áhrif á frumuvöxt og eru notaðar til meðhöndlunar á þrálátum sárum og brunasárum, einkum hjá fólki með sykursýki. Fyrirtækið er einnig með starfsemi í Bandaríkjunum. Rekstrartekjur fyrirtækisins jukust um 142% á milli áranna 2018 og 2019, en þær fóru úr rúmum 500 milljónum króna í yfir 1,2 milljarð króna. Kerecis hlaut jafnframt sérstaka viðurkenningu fyrir að hafa í fyrsta sinn náð veltu yfir 1 milljarði króna á árinu 2019. Þetta er í annað sinn sem Kerecis hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins en árið 2017 hlaut fyrirtækið einnig Vaxtarsprotann.

Tvö önnur fyrirtæki, Carbon Recycling International og Pure North Recycling, hlutu einnig viðurkenningar fyrir mikinn vöxt í veltu á milli ára. Carbon Recycling International rekur verksmiðju í Svartsengi sem framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni og þróar tæknilausn til að framleiða vistvænt eldsneyti. Velta fyrirtækisins jókst um 78% á milli ára. Pure North Recycling endurvinnur plast með umhverfisvænum orkugjöfum og er jarðvarmi í aðalhlutverki.  Velta fyrirtækisins jókst um 59% milli ára.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Þetta er í 14. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar en tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Í dómnefnd voru Ari Kristinn Jónsson fyrir Háskólann í Reykjavík, Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannís og Sigríður Mogensen fyrir Samtök iðnaðarins og Samtök sprotafyrirtækja.

DEILA