Arctic Fish golfmótið á Ísafirði

Keppendur á mótinu með viðurkenningar. Mynd: aðsend.

Arctic Fish mótið, sem er hluti af Sjávarútvegsmótaröðinni var haldið sunnudaginn 26. júlí.  45 keppendur voru skráðir og úrslit voru eftirfarandi.

 

Í höggleik karla var lítill munur á  milli keppenda og fór svo  Baldur Ingi Jónasson sigraði á 76 höggum.  Ásgeir Óli Kristjánsson spilaði á 77 höggum og endaði í öðru sæti.  Unnsteinn Sigurjónsson endaði í þriðja sæti eftir bráðabana við Kristinn Þórir Kristjánsson en báðir spiluðu þeir á 78 höggum.  Í fimmta sæti var Vilhjálmur Gísli Antonsson á  79 höggum.

 

Í höggleik kvenna sigraði María Málfríður Guðnadóttir á 81 höggi.  Bjarney Guðmundsdóttir var í öðru sæti á 90 höggum.  Í þriðja sæti var Anna Guðrún Sigurðardóttir á 92 höggum.  Í fjórða sæti var Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir á 99 höggum.  Í fimmta sæti var Ásdís Birna Pálsdóttir á 103.

 

Í höggleik unglinga öttu kappi tveir unglingar og réðust úrslit á síðustu holunni.  Jón Gunnar Shiransson spilaði á 73 höggum á meðan Hjálmar Helgi Jakobsson spilaði á 74 höggum.

 

Í opnum flokki, Stableford punktakeppni, sigraði Snorri Páll Guðbjörnsson með 41 punkt.  Böðvar Þórisson var með 40 punkta í öðru sæti, en einnig með 40 punkta var Jakob Tryggvason í þriðja sæti.  Í fjórða sæti var Julo Thor Rafnsson með 39 punkta.  Í fimmta sæti var Vilhjálmur Matthíasson með 38 punkta.

DEILA