Morrisons kaupir tækni frá Skaganum 3X fyrir 300 m.kr.

Morrisons, ein stærsta verslanakeðja Bretlands með yfir 550 verslanir og er auk þess leiðandi framleiðandi á fiski og öðru sjávarfangi til breskra neytenda, hefur fest kaup á SUB-CHILLING ™ tækninni frá Skaganum 3X og verður fyrsta fyrirtækið til að nýta þessa byltingarkenndu tækni á Bretlandsmarkaði. Auk SUB-CHILLING™ hefur Morrisons fest kaup á RoteX™ uppþíðingarkerfi fyrir frystar afurðir og lausn sem vinnur marning og sundmagahryggi. Heildarsöluverð búnaðarins er um 300 miljónir króna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Skaganum 3X.

SUB-CHILLING ™ kerfið er hannað og þróað af Skaganum 3X og notar sérhæfða tækni sem viðheldur upprunalegum gæðum afurðar og eykur einnig geymsluþol. Fiskurinn er kældur niður í mínus eina gráðu en til samanburðar verður fiskur kældur með ís aldrei kaldari en um frostmark. Ávinningurinn eru stífari flök til vinnslu án frumuskemmda vegna ískristallamyndunar og þannig lengist geymsluþol afurðarinnar

 

Aukin gæði
Áætlað er að uppsetningu búnaðarins ljúki í júlí 2020 í verksmiðju Morrisons í Grimsby í Englandi.
Kerfið mun viðhalda gæðum og lengja geymsluþol á þeim 20 þúsund tonnum af hvítfisk og laxi sem Morrisons framleiðir árlega

Tímamótasamningur á Bretlandseyjum

Ragnar A. Guðmundsson, sölustjóri hjá Skaganum 3X, segir, „Það er mikið ánægjuefni að fyrirtæki líkt og Morrissons ákveður að hækka gæðakröfur sínar með því að velja SUB-CHILLING™ tækni okkar. Það skref var stigið eftir sameiginlegar rannsóknir okkar í febrúar. Þrátt yfir Corona-veiruna tókst okkur að ná saman um þessi viðskipti og er ætlun okkar að óbreyttu að ljúka uppsetningu í júlí. Frá því að við afhentum fyrsta SUB-CHILLING™ kerfið árið 2014 hefur markaðurinn smám saman áttað sig á hverju það getur áorkað. Mörg fyrirtæki hafa bæst í hópinn og viðræður standa yfir við nokkur önnur fyrirtæki. Við trúum því að ofurkælt hráefni verði viðmið markaðarins fyrr en varir.“

Ragnar A. Guðmundsson sölustjóri og Peter Nickson framkvæmdastjóri fiskhluta Morrison.
DEILA