Sýndarleikur Vestra: Fyllum Jakann

Hið fordæmalausa ástand, sem öll heimsbyggðin upplifir nú, kemur afar illa niður á íþróttafélögum. Mikil óvissa ríkir um það hvenær og hvernig hægt verður að hefja skipulagt íþróttastarf á nýjan leik. Þetta hefur kollvarpað fjárhagslegum plönum körfuknattleiksliði Vestra og nú er þörf á að styðja við bakið á liðinu.

Því hefur Vestri hleypt af stokkunum fjáröflun fyrir starfið:

Meistaraflokkur karlaliðs Vestra í körfuknattleik  var búinn að tryggja sig inn í úrslitakeppni 1. deildar þegar keppni var aflýst. Það var mikill hugur í okkar mönnum sem höfðu unnið sjö af síðustu átta leikjum sínum. Allar okkar áætlanir höfðu miðað að því að vera komin með liðið á þennan stað þegar ósköpin dundu yfir.

Mörg félög hafa nú gripið til þess að leita til stuðningsmanna sinna um fjárstuðning með því að selja inn á leiki í úrslitakeppninni, sem aldrei mun þó fara fram. Við vitum að karfan á Ísafirði á stóran hóp af fyrrum leikmönnum, stjórnarfólki og stuðningsmönnum um allt land, og jafnvel víðar. Því langar okkur að freista þess að leita eftir aðstoð ykkar við að rétta fjárhaginn þannig við að loka megi rekstri tímabilsins með viðunandi hætti og koma þannig sterkari til leiks í haust.

1 leikur 1.500 krónur

1 leikur og Vestraborgari 3.000 krónur

Öll úrslitakeppnin 5.000 krónur

Einnig er öllum frjálst að leggja inn þá upphæð sem þeir kjósa.

Við vitum svo vel að margt smátt gerir eitt stórt.

Reikningur félagsins er 0556-26-1099 og kennitalan er 651093-2449

Einnig er hægt að fara inn á viðburð hjá Kass.is og greiða þannig.

DEILA