Ísafjörður : Upplýsingafundur mánudaginn 20. apríl

Haldinn verður upplýsingafundur um stöðuna í Ísafjarðarbæ vegna Covid-19 í dag, mánudaginn 20. apríl,  2020 kl. 15:00.

Á föstudaginn var haldinn sams konar upplýsingafundur í Bolungavík og verður fundurinn í dag með sama sniði.

Fundurinn verður sendur beint út á Facebook og þar verður hægt að senda inn fyrirspurnir. Best er þó að senda spurningar inn fyrirfram því þá er hægt að undirbúa svör betur.

Dagskrá
Framsöguerindi:
Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri
Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir‎, yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjóri lögreglunnar á Vestfjörðum

Umræður og fyrirspurnir

DEILA