Fimmtudagur 24. apríl 2025

Afmæli: Magnús Kr. Guðmundsson níræður

Auglýsing

Magnús Kr. Guðmundsson, athafnamaður frá Tungu í Tálknafirði varð níræður í gær.

Magnús er fæddur og uppalinn á Tálknafirði og var þar útgerðarmaður í rúmlega hálfa öld og mikill aflamaður. Magnús stofnaði 1980 fiskverkunina Þórsberg ásamt fjölskyldu sinni. Magnús var sæmdur  fálkaorðunni árið 2004  fyrir störf að sjávarútvegsmálum. Magnús hefur lengi komið að fiskeldi í Tálknafirði, fyrst þorskeldi og svo silungseldi  og stendur að rekstri Tungusilungs sem vinnur matvöru úr bleikju og silungi.

Það má segja að hafi verið vel við hæfi að  honum barst í gær símtal þar sem greint frá því að vörur Tungusilungs höfðu hlotið glæsileg verðlaun í fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna.

 

Auglýsing

Auglýsing
Auglýsing

Nýtt á BB

Auglýsing

Fleiri fréttir