Sjávarútvegsráðherra : vill efla starfsemi stofnana á landsbyggðinni

Áætlun hefur verið gerð til að fjölga starfsmönnum stofnana á landsbyggðinni sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Sett hafa verið fram tölusett markmið um fjölgun árin 2021, 2023 og 2025. Þá munu sömu stofnanir leitast við að ná fram hagræði í rekstri með að hafa starfsstöðvar í sama húsnæði. Jafnframt munu þær bjóða starfsmönnum sínum upp á aukinn sveigjanleika varðandi val á starfsstöð. Bæði Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun munu á næstu þremur árum ráða í nýjar stöður tengdar fiskeldi á Austurlandi og á Vestfjörðum.

Þetta er meðal helstu atriða sem fram koma í áætlun um eflingu starfsemi stofnana sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fram til ársins 2025. Þær stofnanir eru Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun. Um er að ræða verkefni sem unnið hefur verið að frá því í haust að frumkvæði Kristjáns Þór Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Áætlunin var unnin í samráði við forstöðumenn þeirra stofnanna sem átakið nær til og undirritað af sömu aðilum. Í áætluninni eru bæði sameiginlegar áherslur og tölusett markmið en sérstakur stýrihópur ráðuneytisins og forstöðumanna stofnana hefur verið falið að tryggja framkvæmd hennar og verður árangur hennar metinn árlega.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun ráðstafa 50 milljónum króna af verkefnafé ráðuneytisins til þessa verkefnis á árinu 2020.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Þessi áætlun er afrakstur vinnu sem ég setti af stað sl. haust og var unnið að útfærslu hennar í samráði við forstöðumenn þeirra stofnana sem að því koma. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem slíkt áætlun er unnið og fjármögnuð með þessum hætti og ég bind vonir við að afrakstur þess verði til þess að efla þjónustu hins opinbera á landsbyggðinni og um leið styrkja atvinnulífið á landsbyggðinni til hagsbóta fyrir samfélagið allt.“

Á Ísafirði voru 6 störf hjá Hafrannsóknarstofnun í lok árs 2019, eitt starf hjá Matís og Matnvælastofnun hvorri um sig og 2 hjá Fiskistofu. Samtals 10 störf af 446 störfum.

 

DEILA